Reglubundin tilkynning um kaup Sjóvá á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


 

Í 38. viku 2015 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.321.601 eigin hluti fyrir kr. 15.996.367 eins og hér segir: 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir Sjóvá eftir viðskipti
14.9.2015 13:21:10 38.132 12,13 462.541 12.472.001
14.9.2015 14:40:46 8.403 12,13 101.928 12.480.404
15.9.2015 14:23:37 19.066 12,11 230.889 12.499.470
15.9.2015 14:29:55 74.406 12,11 901.057 12.573.876
15.9.2015 16:34:35 95.330 12,11 1.154.446 12.669.206
15.9.2015 16:53:44 19.066 12,11 230.889 12.688.272
15.9.2015 17:23:20 210.000 12,11 2.543.100 12.898.272
16.9.2015 11:33:55 70.000 12,11 847.700 12.968.272
16.9.2015 13:04:06 730.000 12,11 8.840.300 13.698.272
18.9.2015 11:33:07 19.066 11,95 227.839 13.717.338
18.9.2015 15:56:39 19.066 11,95 227.839 13.736.404
18.9.2015 16:34:50 19.066 11,95 227.839 13.755.470
Samtals   1.321.601   15.996.367  

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 8. júlí 2015, sbr. og tilkynning til Kauphallar dags. 7. júlí 2015.

Sjóvá hefur nú keypt samtals 13.755.470 hluti í félaginu sem samsvarar 34,39% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 160.933.547. Sjóvá á nú samtals 0,86% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.592.520.994.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 40.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016, en þó aldrei síðar en 26. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.