Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.
Í 39. viku 2015 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 1.942.409 eigin hluti fyrir 40,0 m.kr. eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu TM eftir viðskipti |
21.9.2015 | 11:54 | 2.000 | 20,60 | 41.200 | 1.942.409 |
22.9.2015 | 10:54 | 639.303 | 20,60 | 13.169.642 | 2.581.712 |
23.9.2015 | 13:03 | 22.500 | 20,50 | 461.250 | 2.604.212 |
24.9.2015 | 12:10 | 17.500 | 20,55 | 359.625 | 2.621.712 |
24.9.2015 | 15:17 | 621.803 | 20,60 | 12.809.142 | 3.243.515 |
25.9.2015 | 14:15 | 639.303 | 20,60 | 13.169.642 | 3.882.818 |
Samtals | 1.942.409 | 40.010.500 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. september 2015, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.
TM hefur nú keypt samtals 3.882.818 hluti í félaginu sem samsvarar 12,5% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 80,1 milljónum króna. TM á nú samtals 0,5% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 31.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en 31. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Viðarsson, forstjóri
s: 515-2609
sigurdur@tm.is