Reglubundin tilkynning um kaup Sjóvá á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


 

Í 39. viku 2015 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 2.083.520 eigin hluti fyrir kr. 24.844.896 eins og hér segir: 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir Sjóvá eftir viðskipti
21.9.2015 12:41:46 19.066 11,96 228.029 13.774.536
21.9.2015 12:56:34 38.132 11,96 456.059 13.812.668
21.9.2015 13:42:18 12.000 11,96 143.520 13.824.668
21.9.2015 15:00:28 19.066 11,96 228.029 13.843.734
21.9.2015 15:42:32 19.066 11,96 228.029 13.862.800
21.9.2015 16:17:37 19.066 11,96 228.029 13.881.866
22.9.2015 12:55:20 800.000 11,96 9.568.000 14.681.866
23.9.2015 11:49:04 19.066 11,9 226.885 14.700.932
23.9.2015 12:38:55 18.992 11,9 226.005 14.719.924
23.9.2015 12:42:35 300.000 11,9 3.570.000 15.019.924
24.9.2015 14:19:11 10.000 11,9 119.000 15.029.924
24.9.2015 15:02:07 38.132 11,9 453.771 15.068.056
24.9.2015 15:12:36 19.066 11,9 226.885 15.087.122
24.9.2015 16:02:57 732.802 11,9 8.720.344 15.819.924
25.9.2015 12:18:33 19.066 11,66 222.310 15.838.990
Samtals   2.083.520   24.844.896  

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 8. júlí 2015, sbr. og tilkynning til Kauphallar dags. 7. júlí 2015.

Sjóvá hefur nú keypt samtals 15.838.990 hluti í félaginu sem samsvarar 39,60% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 185.778.442. Sjóvá á nú samtals 0,99% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.592.520.994.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 40.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016, en þó aldrei síðar en 26. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.