VIÐSKIPTAYFIRLIT SEPTEMBER 2015 – NASDAQ ICELAND


Reykjavík, 01. október, 2015 – Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir september 2015 eru eftirfarandi:   

Hlutabréf:

·         Heildarviðskipti með hlutabréf í septembermánuði námu 38.590 milljónum eða 1.754 milljónum á dag. Það er 6% lækkun frá fyrri mánuði, en í ágúst námu viðskipti með hutabréf 1.866 milljónum á dag.  Þetta er 123% hækkun á milli ára (viðskipti í september 2014 námu 786 milljónum á dag).

·         Mest voru viðskipti með bréf Icelandair Group (ICEAIR), 6.632 milljónir, Marel (MARL), 6.050 milljónir, Reita fasteignafélags (REITIR), 4.514, N1 (N1), 2.815 milljónir,  og HB Granda (GRND), 2.382 milljónir.

·         Úrvalsvísitalan (OMXI8) hækkaði um 5,9% á milli mánaða og stendur nú í 1.680 stigum.

·         Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Landsbankinn með mestu hlutdeildina, 28,9% (28,6% á árinu), Arion banki með 23,1% (22,7% á árinu), og MP banki með 18,5% (19,6% á árinu*).

·         Í lok september voru hlutabréf 19 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi.  Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 936 milljörðum króna (samanborið við 909 milljarða í ágúst).

Skuldabréf:

   ·         Heildarviðskipti með skuldabréf námu 228 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 10,4 milljarða veltu á dag. Þetta er 7% hækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í ágúst námu 9,7 milljörðum á dag), en 34% hækkun frá fyrra ári (viðskipti í september 2014 námu 7,7 milljörðum á dag).

·         Alls námu viðskipti með ríkisbréf 199 milljörðum en viðskipti með íbúðabréf námu 23 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 22 1026, 36,5 milljarðar, RIKB 20 0205, 35,4 milljarðar, RIKB 19 0226, 35,4 milljarðar, RIKB 25 0612, 28,9 milljarðar og RIKS 21 0414, 25,0 milljarðar.

·         Á skuldabréfamarkaði var Landsbankinn með mestu hlutdeildina, 26,1% (21,0% á árinu), MP banki með 24,2% (31,0% á árinu*) og Íslandsbanki með 17,6% (19,7% á árinu).

·         Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 0,1% í september og stendur í 1.172 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 2,3% og sú verðtryggða (NOMXIREAL) lækkaði um -0,8%.                        

*Samanlögð hlutdeild MP banka og Straums fjárfestingabanka

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

#

Um Nasdaq

Nasdaq  (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 70 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,600 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 9.6 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland, Nasdaq Riga, Nasdaq Stockholm, Nasdaq Tallin, Nasdaq Vilnius, Nasdaq Clearing og Nasdaq Broker Services eru vörumerkin fyrir Nasdaq OMX Copenhagen A/S, Nasdaq OMX Helsinki Ltd., Nasdaq OMX Iceland hf., Nasdaq OMX Riga, AS, Nasdaq OMX Stockholm AB, Nasdaq OMX Tallinn AS, Nasdaq OMX Vilnius, Nasdaq OMX Clearing AB, Nasdaq OMX Broker Services AB. Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm. Nasdaq Baltic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Tallinn, Nasdaq Riga og Nasdaq Vilnius.

         Fjölmiðlar:
         Kristín Jóhannsdóttir
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com
         Sími 868 9836


Attachments

2015_1001_Viðskiptayfirlit fyrir september 2015.pdf