Birting uppgjörs 3. ársfjórðungs 2015


Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung ársins 2015, fimmtudaginn 29. október 2015. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn föstudaginn 30. október 2015 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, og Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, munu kynna afkomuna og svara spurningum ásamt öðrum stjórnendum. Kynningin hefst kl. 8:30 og verður í Víkingasal 4-5.  Morgunverður í boði frá kl. 8:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf.

Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni:
http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/webcast-2015/