Afkoma Sjóvá-Almennra trygginga hf. eftir fyrstu 9 mánuði er betri en áður kynntar horfur ársins 2015


Í upphafi árs gaf Sjóvá út að horfur ársins 2015 væru að afkoma fyrir skatt yrði á bilinu 2.000-2.600 milljónir króna. Í frétt með 6 mánaða uppgjöri var bent á að afkoma væri töluvert umfram væntingar en að hún myndi að verulegu leyti ráðast af afkomu fjárfestingaeigna. Í drögum að 9 mánaða uppgjöri er afkoma fyrstu 9 mánaða ársins tæplega 2.900 milljónir króna fyrir skatta. Afkoma umfram væntingar ræðst sem fyrr af mun betri fjárfestingatekjum en ráð var fyrir gert.

Félagið minnir á að afkoma vátryggingafélaga getur sveiflast mikið á milli ársfjórðunga, bæði fjárfestingatekjur og afkoma vátryggingarekstrar.

Sjóvá mun birta árshlutauppgjör fyrir þriðja ársfjórðung 2015 eftir lokun markaða föstudaginn 6. nóvember n.k. Félagið býður markaðsaðilum til kynningarfundar kl. 16:15 þann sama dag í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð.

Nánari upplýsingar veitir Þórður Pálsson, fjárfestatengill, í síma 844-2135, netfang: fjarfestar@sjova.is