Stjórn Nýherja hf. endurskoðar ákvörðun um sölu á 25% eignarhlut í TEMPO ehf.


Að undanförnu hefur áhugi fjárfesta á kaupum á allt að 25% hlut í Tempo verið kannaður. Niðurstaða þeirrar könnunar var sú að bæði  innlendir  og erlendir fjárfestar lýstu vilja til að eignast meirihluta í Tempo. Slík sala var þó ekki það sem lagt var upp með og stjórn Nýherja hefur nú ákveðið að fresta sölu á hlutum í félaginu. Stjórn mun í náinni framtíð meta hvort álitlegt getur talist að endurskoða ákvörðun um sölu og selda hlutdeild. 

Endurskoðun á ákvörðun um sölu hefur engin áhrif á rekstraráætlanir Tempo.  Horfur í rekstri eru góðar og gert ráð fyrir áframhaldandi tekjuvexti og ágætri afkomu.

TEMPO EHF.

TEMPO hugbúnaðurinn er hannaður og þróaður af TEMPO ehf. (temposoftware.com). Fyrirtækið er dótturfélag Nýherja og eru höfuðstöðvar þess í Reykjavík. Hjá fyrirtækinu starfa um 65 manns og eru starfsstöðvar þess á Íslandi og í Kanada. TEMPO er leiðandi í hugbúnaðargerð á sviði verkefna- og eignasafnsstjórnunarlausna (PPM) fyrir JIRA kerfið frá Atlassian. Viðskiptavinir fyrirtækisins eru allt frá smáum sprotafyrirtækjum til Fortune 500 fyrirtækja með yfir 10.000 TEMPO notendur. Meira en 7.000 fyrirtæki í yfir 100 löndum nota hugbúnaðarlausnir TEMPO.  Þar á meðal eru stórfyrirtæki á borð við Disney, eBay, Amazon, AT&T, Oracle, BMW, Dell og Pfizer. TEMPO á í samstarfi við yfir 85 Atlassian Experts um allan heim í tengslum við sölu, þjálfun og ráðgjöf á TEMPO hugbúnaðinum.

 

Tekjur fyrirtækisins voru 5,7 milljónir dollara á árinu 2014 og jukust um 85% milli ára. Á fyrsta ársfjóðungi ársins 2015 voru tekjur Tempo 2,2 miljónir dollara sem er 57% aukning frá síðasta ári. Erlendar tekjur námu 98% af heildartekjum fyrirtækisins þar sem 50% af þeirri upphæð kom frá Evrópu og 35% frá Norður-Ameríku.

 

Nánari upplýsingar um TEMPO er hægt að nálgast á www.temposoftware.com

 

 

NÝHERJI HF.

Nýherji (NASDAQ OMX: NYHR.IC) er samstæða fyrirtækja í upplýsingatækni. Nýherji er þjónustufyrirtæki og hlutverk þess felst í að aðstoða viðskiptavini að ná enn betri árangri í sínum rekstri með aðstoð upplýsingatækni, sérfræðiþekkingu starfsfólks og lipurri þjónustu. Hjá móðurfélaginu starfa 250 manns en hjá samstæðunni um 470. Dótturfélög Nýherja eru TM Software og Applicon, á Íslandi og í Svíþjóð. Nýherji er skráð í Kauphöll Íslands. Nánari upplýsingar er að finna á www.nyherji.is

 

 

TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA

Nýherji vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna af birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar fréttatilkynningin er birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum.

 

NÁNARI UPPLÝSINGAR

NÝHERJI HF.

Finnur Oddsson

Forstjóri

fo@nyherji.is

Sími: (+354) 862 0310

 

Gunnar Petersen

Framkvæmdarstjóri Fjármálasviðs

gp@nyherji.is

Sími:(+354) 825 9001

 

TEMPO EHF.

Ágúst Einarsson

Framkvæmdarstjóri

ae@temposoftware.is

Sími: (+354) 860 7501