- Hagnaður eftir skatta nam 103,1 milljón USD og jókst um 17,3 milljónir USD frá fyrra ári.
- EBITDA nam 150,9 milljónum USD samanborið við 123,9 milljónir USD 2014.
- EBITDA hlutfall var 35,1% samanborið við 29,6% á sama tímabili árið áður.
- Heildartekjur jukust um 3%, aukningin er um 13% á föstu gengi.
- Eiginfjárhlutfall var 46% í lok september.
- EBITDA-spá fyrir árið 2015 hækkuð í 210-215 milljónir USD.
BJÖRGÓLFUR JÓHANNSSON, FORSTJÓRI:
„Afkoma á þriðja ársfjórðungi var góð og reksturinn gekk vel. Við uppfærðum EBITDA spá okkar fyrr í vikunni og gerum ráð fyrir að EBITDA ársins verði 210-215 milljónir USD. Hækkunin skýrist af góðri afkomu félagsins á þriðja ársfjórðungi, einkum vegna hærri farþegatekna og lægri eldsneytiskostnaðar, auk þess sem viðhaldskostnaður var lægri en áætlað hafði verið. Þá hafa afkomuhorfur fyrir fjórða ársfjórðung styrkst, aðallega vegna sterkari bókunarstöðu í millilandaflugi auk þess sem ytri þættir hafa þróast hagfellt fyrir félagið frá síðasta uppgjöri.
Horfur í rekstri Icelandair Group eru góðar. Í byrjun september var millilandaflugáætlun ársins 2016 kynnt og fjölgar framboðnum sætiskílómetrum um 18% frá árinu 2015. Gert er ráð fyrir að flytja 3,5 milljónir farþega samanborið við 3,0 milljónir farþega á yfirstandandi ári. Samkeppnin á markaðnum hefur aldrei verið meiri og ljóst að hún mun enn aukast á komandi misserum, bæði til og frá Íslandi og yfir hafið. Ferðaþjónustan er að breytast, ferðamannatímabilið er að lengjast sem hefur í för með sér minni árstíðasveiflur og meiri tækifæri til uppbyggingar víða um land.
Mikill vöxtur er í íslenskri ferðaþjónustu og voru aðstæður mjög krefjandi síðastliðið sumar, sérstaklega á Keflavíkurflugvelli. Starfsfólk fyrirtækja okkar vann frábært starf yfir háannatímann.”
Nánari upplýsingar veita:
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group
sími: 896-1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group
sími: 665-8801