REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 44. viku 2015 keypti Reitir fasteignafélag hf. 346.000 eigin hluti fyrir 29.449.236 kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskipta-verð Kaupverð   Eigin hlutir  eftir viðskipti
26.10.2015 13:26 5.822 85,00 494.870 5.043.148
26.10.2015 14:38 244.178 85,20 20.803.966 5.287.326
28.10.2015 14:36 96.000 84,90 8.150.400 5.383.326
Samtals   346.000   29.449.236  

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 19. júní 2015, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 18. júní 2015.    
    
Reitir hafa nú keypt samtals 5.383.326 hluti í félaginu sem samsvarar 15,83% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 389.623.531 krónum. Reitir eiga nú samtals 0,71% af heildarhlutafé félagsins.    
    
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 34.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 2.300 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en þann 29. febrúar 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.