Í 45. viku 2015 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 2.118.604 eigin hluti fyrir kr. 28.054.461 eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Eigin hlutir Sjóvá eftir viðskipti |
3.11.2015 | 12:24:52 | 76.264 | 13,53 | 1.031.852 | 19.156.116 |
4.11.2015 | 10:46:56 | 393.113 | 13,41 | 5.271.645 | 19.549.229 |
4.11.2015 | 11:37:29 | 9.533 | 13,41 | 127.838 | 19.558.762 |
4.11.2015 | 13:22:45 | 397.354 | 13,41 | 5.328.517 | 19.956.116 |
5.11.2015 | 14:01:15 | 800.000 | 13,23 | 10.584.000 | 20.756.116 |
6.11.2015 | 11:22:16 | 442.340 | 12,91 | 5.710.609 | 21.198.456 |
Samtals | 2.118.604 | 28.054.461 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 8. júlí 2015, sbr. og tilkynning til Kauphallar dags. 7. júlí 2015.
Sjóvá hefur nú keypt samtals 21.198.456 hluti í félaginu sem samsvarar 53% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 255.361.081. Sjóvá á nú samtals 1,33% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.592.520.994.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 40.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016, en þó aldrei síðar en 26. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður.
Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.