Í tilkynningu Svanhildar Nönnu Vigfúsdóttur til VÍS í dag kemur fram að hún hafi ákveðið að draga framboð sitt til aðalstjórnar félagsins tilbaka, en í dag kl. 16:00 fer fram hluthafafundur í VÍS þar sem kosið verður í stjórn félagsins.
Eftirtaldir einstaklingar eru áfram í framboði til setu í stjórn félagsins:
Til aðalstjórnar:
Bjarni Brynjólfsson
Guðmundur Þórðarson
Helga Jónsdóttir
Herdís Fjeldsted
Jostein SØrvall
Jóhann Halldórsson
Til varastjórnar:
Andri Gunnarsson
Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir
Davíð Harðarson