Á hluthafafundi í Vátryggingafélagi Íslands hf. sem lauk fyrir stuttu var einungis eitt mál á dagskrá þ.e. kosning til stjórnar félagsins. Eftirfarandi einstaklingar voru kjörnir í stjórn félagsins:
Aðalstjórn
Bjarni Brynjólfsson
Guðmundur Þórðarson
Helga Jónsdóttir
Herdís Dröfn Fjeldsted
Jostein Sørvoll
Varastjórn
Andri Gunnarsson
Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir
Ný stjórn hélt stjórnarfund eftir hluthafafundinn og skipti með sér verkum. Herdís Dröfn Fjelsted var kjörin formaður stjórnar og Jostein Sørvoll varaformaður stjórnar.