Eimskip birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2015

Kynningarfundur 20. nóvember 2015


Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2015 eftir lokun markaða fimmtudaginn 19. nóvember 2015.

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Gylfi Sigfússon forstjóri og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, munu kynna uppgjör þriðja ársfjórðungs og fyrstu níu mánaða 2015.           

Fundurinn verður haldinn föstudaginn 20. nóvember 2015 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst kl. 8:30. Boðið verður uppá morgunverð frá kl. 8:15.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast eftir fundinn á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.