Í 46. viku 2015 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 2.087.758 eigin hluti fyrir kr. 27.329.444 eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Eigin hlutir Sjóvá eftir viðskipti |
9.11.2015 | 10:45:07 | 224.297 | 13,21 | 2.962.963 | 21.422.753 |
9.11.2015 | 16:19:22 | 575.703 | 13,20 | 7.599.280 | 21.998.456 |
11.11.2015 | 11:54:30 | 19.066 | 13,10 | 249.765 | 22.017.522 |
11.11.2015 | 12:54:30 | 780.934 | 13,10 | 10.230.235 | 22.798.456 |
12.11.2015 | 11:00:27 | 400.000 | 12,89 | 5.156.000 | 23.198.456 |
12.11.2015 | 11:38:37 | 80.000 | 12,89 | 1.031.200 | 23.278.456 |
12.11.2015 | 15:08:09 | 7.758 | 12,89 | 100.001 | 23.286.214 |
Samtals | 2.087.758 | 27.329.444 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 8. júlí 2015, sbr. og tilkynning til Kauphallar dags. 7. júlí 2015.
Sjóvá hefur nú keypt samtals 23.286.214 hluti í félaginu sem samsvarar 58,22% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 282.690.525. Sjóvá á nú samtals 1,46% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.592.520.994.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 40.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016, en þó aldrei síðar en 26. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður.
Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.