Í viku 47 keyptu Fjarskipti hf. 100.000 eigin hluti að kaupverði 4.755.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
18.11.2015 | 14:17 | 20.000 | 47,55 | 951.000 |
18.11.2015 | 14:17 | 27.000 | 47,55 | 1.283.850 |
18.11.2015 | 15:13 | 53.000 | 47,55 | 2.520.150 |
Samtals | 100.000 | 4.755.000 |
Fjarskipti áttu 8.246.216 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 8.346.216 eigin hluti eða sem nemur 2,48% af útgefnum hlutum í félaginu.
Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Fjarskipta sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 6. júlí 2015.
Fjarskipti hafa keypt samtals 8.007.216 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,38% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 364.257.054 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 10.300.000 hlutum eða sem nemur 3,06% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 400.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 31. desember 2015 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitir "Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga."
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, fjarfestatengsl@vodafone.is