Í 47. viku 2015 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 2.092.478 eigin hluti fyrir 48,9 m.kr. eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu TM eftir viðskipti |
17.11.2015 | 09:41 | 639.303 | 23,55 | 15.055.586 | 18.812.328 |
18.11.2015 | 09:31 | 639.303 | 23,25 | 14.863.795 | 19.451.631 |
19.11.2015 | 11:33 | 22.500 | 23,30 | 524.250 | 19.474.131 |
19.11.2015 | 15:13 | 50.000 | 23,30 | 1.165.000 | 19.524.131 |
19.11.2015 | 15:15 | 102.372 | 23,30 | 2.385.268 | 19.626.503 |
19.11.2015 | 15:15 | 400.000 | 23,30 | 9.320.000 | 20.026.503 |
20.11.2015 | 10:41 | 180.000 | 23,30 | 4.194.000 | 20.206.503 |
20.11.2015 | 15:15 | 59.000 | 23,30 | 1.374.700 | 20.265.503 |
Samtals | 2.092.478 | 48.882.598 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. september 2015, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.
TM hefur nú keypt samtals 20.265.503 hluti í félaginu sem samsvarar 65,4% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 449,2 milljónum króna. TM á nú samtals 2,7% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 31.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en 31. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Viðarsson, forstjóri
s: 515-2609
sigurdur@tm.is