Leiðrétting:Ítarlegri upplýsingar um kaupverð, fjármögnun og fleira.
Í dag var skrifað undir kaupsamning um kaup FÍ fasteignafélags slhf á fasteigninni Víkurhvarfi 3 í 203 Kópavogi. Seljandi er Víkurhvarf 3 ehf. kt. 441208-0730 .
Víkurhvarf 3 er skrifstofu og þjónustuhúsnæði sem er 3.200 fermetrar að stærð .
Kaupverð er 985 mkr og verða fjármögnuð með eigin fé og stækkun á skuldabréfaflokki félagsins FIF 13 01.
Fjárfestingin fellur vel að fjárfestingarstefnu félagsins m.t.t leigutaka og leigutíma.
Leigutakar í Víkurhvarfi 3 eru Menntamálastofnun og ORF Líftækni og er húsnæðið því 100% útleigt. Meðallíftími leigusamninga í fasteigninni eru 9 ár.
Með kaupunum á Víkurhvarfi 3 þá aukast leigutekjur félagsins um 85 mkr á ári og EBITDA félagsins um 16% á ársgrundvelli.
Gert er ráð fyrir að afhending eignarinnar til FÍ verði í byrjun árs 2016.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri FÍ, Örn V. Kjartansson s. 8259000, orn@fifasteignir.is