Í 48. viku 2015 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 1.517.054 eigin hluti fyrir 35,8 m.kr. eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu TM eftir viðskipti |
23.11.2015 | 15:12 | 97.162 | 23,85 | 2.317.314 | 20.362.665 |
24.11.2015 | 14:07 | 32.842 | 23,60 | 775.071 | 20.395.507 |
24.11.2015 | 15:18 | 606.461 | 23,60 | 14.312.480 | 21.001.968 |
25.11.2015 | 09:37 | 639.303 | 23,60 | 15.087.551 | 21.641.271 |
26.11.2015 | 15:12 | 141.286 | 23,30 | 3.291.964 | 21.782.557 |
Samtals | 1.517.054 | 35.784.379 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. september 2015, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.
TM hefur nú keypt samtals 21.782.557 hluti í félaginu sem samsvarar 70,3% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 484,9 milljónum króna. TM á nú samtals 2,9% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 31.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en 31. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.