Fjarskipti hf. : Reglubundin tilkynning um kaup Fjarskipta á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 49 keyptu Fjarskipti hf. 306.100 eigin hluti að kaupverði 14.596.700 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
30.11.2015 14:24 7.500 47,70 357.759
30.11.2015 14:33 292.500 47,70 13.952.250
04.12.2015 10:43 6.100 47,00 286.700
Samtals   306.100   14.596.700

 

Fjarskipti áttu 8.546.216 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 8.852.316 hluti eða sem nemur 2,63% af útgefnum hlutum í félaginu.

Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Fjarskipta sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 6. júlí 2015.

Fjarskipti hafa keypt samtals 8.513.316 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,53% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra  388.453.754 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 10.300.000 hlutum eða sem nemur 3,06% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 400.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 31. desember 2015 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið "Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga."

 

Nánari upplýsingar veitir:

Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, fjarfestatengsl@vodafone.is