Listi yfir 20 stærstu hluthafa Nýherja hf. í lok dags 21. desember 2015 er eftirfarandi að loknu uppgjöri á nýafstöðnu hlutafjárútboði. Heildarstærð útboðsins nam 9,76% af útgefnu hlutafé í félaginu eða 40 milljónum hlutum. Útgefið hlutafé í dag nemur 450 milljónum hlutum.
Hluthafi | Fjöldi hluta | Hlutfall | |
1 | Vænting hf. | 67.980.832 | 15,1% |
2 | Lífeyrissjóður verslunarmanna | 46.119.303 | 10,2% |
3 | Kvika banki hf. | 40.507.160 | 9,0% |
4 | Stafir lífeyrissjóður | 35.264.981 | 7,8% |
5 | Fiskveiðahlutafélagið Venus hf. | 26.778.483 | 6,0% |
6 | Sjóvá-Almennar tryggingar hf. | 20.671.781 | 4,6% |
7 | Sameinaði lífeyrissjóðurinn | 15.500.488 | 3,4% |
8 | Íslandsbanki hf. | 14.045.314 | 3,1% |
9 | P 126 ehf. | 13.737.586 | 3,1% |
10 | Vátryggingafélag Íslands hf. | 12.493.049 | 2,8% |
11 | A.C.S safnreikningur I | 11.807.626 | 2,6% |
12 | Landsbankinn hf. | 10.904.870 | 2,4% |
13 | Benedikt Sveinsson | 10.798.860 | 2,4% |
14 | HEF kapital ehf | 10.546.500 | 2,3% |
15 | Danske Bank A/S | 8.627.751 | 1,9% |
16 | GBV 17 ehf. | 8.117.159 | 1,8% |
17 | Arion banki hf. | 7.005.046 | 1,6% |
18 | Benedikt Jóhannesson | 6.037.095 | 1,3% |
19 | Hólmur ehf | 5.066.480 | 1,1% |
20 | Lífsverk lífeyrissjóður | 4.204.500 | 0,9% |
20 stærstu samtals | 376.214.864 | 83,6% | |
Aðrir hluthafar | 73.613.967 | 16,4% | |
Eigin hlutir | 171.169 | 0,0% | |
Útgefnir hlutir samtals | 450.000.000 | 100,0% |
NÝHERJI HF.
Nýherji hf. (NASDAQ OMX: NYHR.IC) er samstæða fyrirtækja í upplýsingatækni. Nýherji er þjónustufyrirtæki og hlutverk þess felst í að aðstoða viðskiptavini að ná enn betri árangri í sínum rekstri með aðstoð upplýsingatækni, sérfræðiþekkingu starfsfólks og lipurri þjónustu. Hjá móðurfélaginu starfa 250 manns en hjá samstæðunni um 500. Dótturfélög Nýherja eru TM Software, TEMPO og Applicon, á Íslandi og í Svíþjóð. Nýherji er skráð í Kauphöll Íslands. Nánari upplýsingar er að finna á www.nyherji.is
Nánari upplýsingar
Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@nyherji.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@nyherji.is.
Til athugunar fyrir fjárfesta:
Nýherji vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna af birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari fréttatilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar fréttatilkynningin er birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum.