Reginn hf.: Reginn undirritar kaupsamning um kaup á fasteignasöfnum Ósvarar ehf. og CFV 1 ehf.


Í tilkynningu Regins hf. þann 12. nóvember síðastliðinn kom fram að undirritað hefði verið samkomulag um kaup á fasteignasöfnum Ósvarar ehf. og CFV 1 ehf.

Í dag var undirritaður kaupsamningur milli Regins hf. og félaganna Ósvarar ehf. og CFV 1 ehf. á grunni ofangreinds samkomulags. Með kaupsamningi þessum kaupir Reginn hf. allt hlutafé í framangreindum félögum. Félögin tvö eru eigendur þeirra fasteignasafna sem samkomulag frá 12. nóvember sl. náði til. Undirritun kaupsamnings er gerð í kjölfar áreiðanleikakönnunar, sem nú er lokið.

Kaupverð, eðli og umfang viðskiptanna sem og metin áhrif á Reginn hf. er í samræmi við fyrri tilkynningu Regins hf. um kaupin. Tilkynningu Regins hf. frá 12. nóvember sl. má finna á heimasíðu félagsins www.reginn.is/fjarfestar.

Vakin er athygli á að kaupsamningurinn er enn háður fyrirvara um að hluthafar Regins hf. samþykki hlutafjáraukningu á hluthafafundi og að hluthafar falli frá forgangsrétti til áskriftar að hinu nýja hlutafé. Hluthafafundur verður boðaður á nýju ári og er stefnt að því að hann verði haldinn í mars.  Þá er fyrirvari um samþykki Samkeppniseftirlitsins og að nýtt hlutafé verði skráð í Kauphöll.

Áætlað er að afhending félaganna fari fram á öðrum ársfjórðungi 2016.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262


Attachments

Tilkynning um undirritun kaupsamnings Ósvör ehf. CFV 1 ehf.  30122015.pdf