Í 1. viku 2016 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 769.303 eigin hluti fyrir 18,1 m.kr. eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu TM eftir viðskipti |
4.1.2016 | 12:28 | 639.303 | 23,50 | 15.023.621 | 26.570.837 |
6.1.2016 | 10:24 | 130.000 | 23,60 | 3.068.000 | 26.700.837 |
Samtals | 769.303 | 18.091.621 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. september 2015, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.
TM hefur nú keypt samtals 26.700.837 hluti í félaginu sem samsvarar 86,1% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 600 milljónum króna sem var sú hámarksfjárhæð sem heimilt var að kaupa fyrir á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar. TM á nú samtals 3,6% af heildarhlutafé félagsins.
Hér með tilkynnist einnig leiðrétting á tilkynningu um endurkaup frá 7.12.2015 (endurkaup í 49. viku 2015) vegna viðskipta þann 2.12.2015. Í tilkynningunni sagði að þann 2.12.2015 hefðu verið keyptir 215.570 hlutir á genginu 23,20 en hið rétta er að það voru 215.517 hlutir keyptir á genginu 23,20.
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Viðarsson, forstjóri
s: 515-2609
sigurdur@tm.is