VÍS - Útgáfa víkjandi skuldabréfs


Með vísan í tilkynningu félagsins þann 17. desember 2015, hefur félagið nú gengið til samninga við Arctica Finance hf. vegna útgáfu og sölu víkjandi skuldabréfa að nafnvirði 2.500.000.000.- kr. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Kauphöll á árinu.

Hin nýju skuldabréf eru vaxtagreiðslubréf og bera 5,25% fasta verðtryggða vexti. Skuldabréfin eru til 30 ára en í bréfunum er uppgreiðsluheimild og þrepahækkun í vöxtum upp í 6,25% eftir 10 ár.

Arctica Finance hefur nú þegar skuldbundið sig gagnvart félaginu til að kaupa heildarvirði skuldabréfaútgáfunnar sem nemur 2.500.000.000 kr. fyrir hönd fjárfesta.  Engu að síður mun félagið í samvinnu við Arctica Finance halda lokað skuldabréfaútboð í þeim tilgangi að bjóða lífeyrissjóðum, verðbréfasjóðum og öðrum fagfjárfestum að fjárfesta í skuldabréfunum.  Stefnt er að því að útgáfudagur skuldabréfanna verði í byrjun mars 2016.