Nýherji hf. – Fjárfestakynning félagsins 29. janúar kl. 09:00 í ráðstefnusal Nýherja að Borgartúni 37


Nýherji hf. heldur kynningarfund fyrir hluthafa og fjárfesta vegna ársuppgjörs félagsins fyrir árið 2015 föstudaginn 29. janúar næstkomandi.


Á fundinum mun Finnur Oddsson forstjóri kynna afkomu félagsins og svara fyrirspurnum.

Kynningin fer fram í ráðstefnusal Nýherja á 1. hæð, að Borgartúni 37 og hefst klukkan 09:00.

 

Hægt verður að fylgjast með netstreymi af fundinum, sem má nálgast hér :

http://www.nyherji.is/nyherji/fyrirtaekid/fjarfestar/

 

Nánari upplýsingar

Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@nyherji.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@nyherji.is.