Nýherji hf. heldur kynningarfund fyrir hluthafa og fjárfesta vegna ársuppgjörs félagsins fyrir árið 2015 föstudaginn 29. janúar næstkomandi.
Á fundinum mun Finnur Oddsson forstjóri kynna afkomu félagsins og svara fyrirspurnum.
Kynningin fer fram í ráðstefnusal Nýherja á 1. hæð, að Borgartúni 37 og hefst klukkan 09:00.
Hægt verður að fylgjast með netstreymi af fundinum, sem má nálgast hér :
http://www.nyherji.is/nyherji/fyrirtaekid/fjarfestar/
Nánari upplýsingar
Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@nyherji.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@nyherji.is.