Reglubundin tilkynning um kaup Sjóvá á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


 

Í 4. viku 2016 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.600.000 eigin hluti fyrir kr. 18.760.000 eins og hér segir. 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir Sjóvá eftir viðskipti
26.1.2016 10:30:00 57.198 11,7 669.217 34.929.425
26.1.2016 10:30:00 19.066 11,7 223.072 34.948.491
26.1.2016 10:30:00 75.000 11,7 877.500 35.023.491
26.1.2016 10:40:05 648.736 11,7 7.590.211 35.672.227
27.1.2016 10:30:00 800.000 11,75 9.400.000 36.472.227
Samtals   1.600.000   18.760.000  

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 8. júlí 2015, sbr. og tilkynning til Kauphallar dags. 7. júlí 2015.

Sjóvá hefur nú keypt samtals 36.472.227 hluti í félaginu sem samsvarar 91,18% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 445.950.201. Sjóvá á nú samtals 2,29% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.592.520.994.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 40.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016, en þó aldrei síðar en 26. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.