Í 4. viku 2016 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.600.000 eigin hluti fyrir kr. 18.760.000 eins og hér segir.
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Eigin hlutir Sjóvá eftir viðskipti |
26.1.2016 | 10:30:00 | 57.198 | 11,7 | 669.217 | 34.929.425 |
26.1.2016 | 10:30:00 | 19.066 | 11,7 | 223.072 | 34.948.491 |
26.1.2016 | 10:30:00 | 75.000 | 11,7 | 877.500 | 35.023.491 |
26.1.2016 | 10:40:05 | 648.736 | 11,7 | 7.590.211 | 35.672.227 |
27.1.2016 | 10:30:00 | 800.000 | 11,75 | 9.400.000 | 36.472.227 |
Samtals | 1.600.000 | 18.760.000 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 8. júlí 2015, sbr. og tilkynning til Kauphallar dags. 7. júlí 2015.
Sjóvá hefur nú keypt samtals 36.472.227 hluti í félaginu sem samsvarar 91,18% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 445.950.201. Sjóvá á nú samtals 2,29% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.592.520.994.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 40.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016, en þó aldrei síðar en 26. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður.
Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.