VIÐSKIPTAYFIRLIT JANÚAR 2016 – NASDAQ ICELAND


Reykjavík, 1. febrúar, 2016 – Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.

Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir janúar 2016 eru eftirfarandi:   

Hlutabréf:

·         Heildarviðskipti með hlutabréf í janúarmánuði námu 57.947 milljónum eða 2.897 milljónum á dag. Það er 143% hækkun frá fyrri mánuði, en í desember námu viðskipti með hlutabréf 1.193 milljónum á dag.  Þetta er 145% hækkun á milli ára (viðskipti í janúar 2015 námu 1.181 milljón á dag).

·         Mest voru viðskipti með bréf Icelandair Group (ICEAIR), 17.824 milljónir, Marel (MARL), 9.034 milljónir, Haga (HAGA), 4.644 milljónir, Símans (SIMINN), 4.299 milljónir,  og Eimskipafélags Íslands (EIM), 3.859 milljónir.

·         Úrvalsvísitalan (OMXI8) lækkaði um 4,2% á milli mánaða og stendur nú í 1.802 stigum.

·         Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Landsbankinn með mestu hlutdeildina, 27,6% (26,4% 2015), Arion banki með 24,6% (23,0% 2015), og Íslandsbanki með 17,0% (18,1% 2015).

·         Í lok janúar voru hlutabréf 20 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi. Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 1.000 milljörðum króna (samanborið við 1.049 milljarða í desember).

Skuldabréf:

·         Heildarviðskipti með skuldabréf námu 150 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 7,5 milljarða veltu á dag. Þetta er 14% hækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í desember námu 6,6 milljörðum á dag), og 61% hækkun frá fyrra ári (viðskipti í janúar 2015 námu 4,7 milljörðum á dag).

·         Alls námu viðskipti með ríkisbréf 126,4 milljörðum, viðskipti með bankabréf námu 12,1 milljarði og viðskipti með íbúðabréf námu 10,4 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 20 0205, 24,5 milljarðar, RIKB 25 0612, 23,1 milljarður, RIKB 22 1026, 23,1 milljarður, RIKB 19 0226, 21,7 milljarðar og RIKB 31 0124, 14,5 milljarðar.

·         Á skuldabréfamarkaði var Kvika banki með mestu hlutdeildina 24,9% (27,9% 2015*), Íslandsbanki með 20,1% (19,6% 2015) og Arion banki með 19,9% (19,6% 2015).

·         Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) lækkaði um 0,7% í janúar og stendur í 1.164 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) lækkaði um 0,6% og sú verðtryggða (NOMXIREAL) lækkaði um 0,7%.                

*Samanlögð hlutdeild Kviku banka og Straums fjárfestingabanka

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

#

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 70 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,600 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 9.6 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm. 

         Kristín Jóhannsdóttir
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com
         s. 868 9836


Attachments

2016_0201_Viðskiptayfirlit fyrir janúar 2016.pdf