Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung ársins 2015, mánudaginn 8. febrúar 2016. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn þriðjudaginn 9. febrúar 2016 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, og Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, munu kynna afkomuna og svara spurningum ásamt öðrum stjórnendum. Kynningin hefst kl. 8:30 og verður í Víkingasal 3. Morgunverður í boði frá kl. 8:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf.
Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni:
http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/webcast-2015/