N1 hf: Hæstaréttardómur í olíusamráðsmálinu


Í dag féll dómur í Hæstarétti Íslands í olíusamráðsmálinu svokallaða sem hófst með húsrannsókn samkeppnisyfirvalda í lok árs 2001. N1 vill taka fram að félagið er ekki aðili að samráðsmálinu, enda tók það til starfa í ársbyrjun 2007. N1 hefur afdráttarlausa stefnu í samkeppnismálum, sem og öðrum málum, um að starfsemi þess skuli ávallt markaður skýr rammi inna vébanda laga og reglna.