Í janúar nam fjöldi farþega í millilandaflugi 173 þúsund og jókst um 15% miðað við janúar á síðasta ári. Framboð í millilandaflugi var aukið um 19%. Sætanýting var 74,2% samanborið við 76,7% í janúar í fyrra. Sætanýting var mjög góð á árinu 2015 og var um met að ræða í öllum mánuðum ársins. Ekki er gert ráð fyrir að sætanýtingin muni aukast í hverjum mánuði árið 2016 líkt og hún gerði á milli áranna 2014 og 2015. Sætanýtingin nú er sú önnur hæsta frá upphafi í janúar.
Farþegar í innanlands- og Grænlandsflugi voru um 20 þúsund í janúar og fjölgaði um 4%. Framboð í janúar var 1% meira en í janúar á síðasta ári og sætanýting var 69,9% og jókst um 2,5 prósentustig. Seldir blokktímar í leiguflugi voru 29% fleiri en í janúar á síðasta ári. Fraktflutningar jukust um 11% á milli ára. Framboðnum gistinóttum hjá hótelum félagsins fjölgaði um 6% á milli ára. Herbergjanýting var 60,7% og 6,4 prósentustigum lægri en í janúar 2015.
MILLILANDAFLUG | JAN 16 | JAN 15 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 173.549 | 150.316 | 15% |
Sætanýting | 74,2% | 76,7% | -2,5 ppt |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 701,0 | 590,3 | 19% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | JAN 16 | JAN 15 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 20.385 | 19.637 | 4% |
Sætanýting | 69,9% | 67,4% | 2,5 ppt |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 9,1 | 9,1 | 1% |
LEIGUFLUG | JAN 16 | JAN 15 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 100,0% | 87,5% | 12,5 ppt |
Seldir blokktímar | 2.148 | 1.668 | 29% |
FRAKTFLUTNINGAR | JAN 16 | JAN 15 | BR. (%) |
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) | 17.298 | 15.043 | 15% |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 8.630 | 7.755 | 11% |
HÓTEL | JAN 16 | JAN 15 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 24.335 | 22.909 | 6% |
Seldar gistinætur | 14.782 | 15.391 | -4% |
Herbergjanýting | 60,7% | 67,2% | -6,4 ppt |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010