Reykjavíkurborg - Útboð RVK 53 1 og RVKN 35 1


Reykjavíkurborg hefur ákveðið í samræmi við útgáfuáætlun 2016 að efna til útboðs í flokkum RVK 53 1 og RVKN 35 1 miðvikudaginn 10.febrúar. Reykjavíkurborg stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 500 milljónir króna að markaðsvirði. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð í hvorum skuldabréfaflokki bjóðast á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) mun ákvarða söluverð.

Heildarstærð RVK 53 1 fyrir þetta útboð nemur alls 19.040 m.kr. að nafnvirði.

Heildarstærð RVKN 35 1 fyrir þetta útboð nemur alls 1.700 m.kr. að nafnvirði.

Heimild til lántöku á árinu 2016 er 2.246 m.kr.

Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 15.febrúar 2016.

Arion banki, Íslandsbanki, Landsbanki og Kvika fjárfestingarbanki eru umsjónaraðilar útboðsins og hafa einir rétt á tilboðsgerð.

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðsskilmála í fylgiskjali:

 

Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 693-9321


Attachments

Útgáfulýsing_RVK-53-1.pdf Reykjavíkurborg Utboðslysing RVK 53 1 og RVKN 35 1.pdf Útgáfulýsing_RVKN 35 1_final.pdf