Í 5. viku 2016 keypti Reitir fasteignafélag hf. 250.000 eigin hluti fyrir 20.650.000 kr. eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskipta-verð | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti |
1.2.2016 | 15:24 | 250.000 | 82,60 | 20.650.000 | 12.644.090 |
Samtals | 250.000 | 20.650.000 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 19. júní 2015, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 18. júní 2015.
Reitir hafa nú keypt samtals 12.644.090 hluti í félaginu sem samsvarar 37,19% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 996.846.877 krónum. Reitir eiga nú samtals 1,68% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 34.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 2.300 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en þann 29. febrúar 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.