Gott ár að baki


  • Hagnaður ársins nam 111,2 milljónum USD og jókst um 44,7 milljónir USD eða 67%.
  • EBITDA 2015 nam 219,0 milljónum USD samanborið við 154,3 milljónir USD árið 2014.
  • Rekstrartekjur jukust um 2% á milli ára. Tekjuaukning á föstu gengi nam 12%.
  • EBITDA á fjórða ársfjórðungi var jákvæð um 20,1 milljón USD en var neikvæð um 1,5 milljónir USD á sama tímabili á síðasta ári.
  • Eiginfjárhlutfall var 47% í árslok 2015 samanborið við 43% í árslok 2014.
  • Handbært fé umfram vaxtaberandi skuldir var 148,6 milljónir USD í árslok.
  • Stjórn félagsins leggur til að arður að fjárhæð 3.500 milljónir króna verði greiddur til hluthafa á árinu 2016 sem samsvarar 0,7 krónum á hvern hlut.

   

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri:

„Rekstur félagsins gekk vel á árinu og afkoman er betri en áætlanir stjórnenda gerðu ráð fyrir í upphafi árs og EBITDA ársins er við efri mörk síðustu afkomuspár félagsins. Margir samverkandi þættir hafa jákvæð áhrif á sterkt ársuppgjör. Þar má nefna lækkandi eldsneytisverð, aukna eftirspurn á Norður-Atlantshafsmarkaðinum sem við höfum mætt með auknu framboði ásamt góðri afkomu í leiguflugi og fraktflugi. Þá hefur nýting á hótelherbergjum aukist talsvert milli ára.

Á undanförnum árum höfum við fylgt skýrri stefnu með það að markmiði að tryggja arðbæran vöxt félagsins til langs tíma. Við viljum að innri vöxtur félagsins sé sjálfbær og taki mið af aðstæðum á hverjum tíma. Undanfarin ár höfum við jafnframt lagt ríka áherslu á að styrkja rekstur félagsins utan háannatímans og það er mjög ánægjulegt að sjá mikinn rekstrarbata á fjórða ársfjórðungi. Sterk eiginfjárstaða og undirliggjandi sjóðstreymi tryggja getu okkar til að ráðast í arðbærar fjárfestingar sem auka samkeppnishæfni til langs tíma. Frá og með árinu 2010 hefur verið góður stígandi í rekstri Icelandair Group og hafa tekjur vaxið úr 718 milljónum USD árið 2010 í 1.140 milljónir USD árið 2015, eða um 422 milljónir USD.

Horfur í rekstri Icelandair Group fyrir árið 2016 eru góðar. Félagið kynnti síðastliðið haust flugáætlun sína í millilandaflugi fyrir árið 2016, sem gerði ráð fyrir aukningu framboðinna sætiskílómetra á milli ára um 18%.  Síðan hefur sala gengið vel og innflæði bókana verið það gott að við höfum ákveðið að bæta einni Boeing 757 vél til viðbótar í flotann.  Heildarframboðsaukning milli ára verður því 24%. EBITDA-spá fyrir árið 2016 gerir ráð fyrir að EBITDA verði á bilinu 245-250 milljónir USD. Gert er ráð fyrir áframhaldandi vexti á ferðamannamarkaðinum til Íslands sem og á markaðnum milli Evrópu og N-Ameríku í gegnum Ísland. Veruleg uppbygging mun halda áfram í hótelstarfsemi félagsins í miðborg Reykjavíkur. Horfur í ferðaþjónustu á Íslandi eru ágætar auk þess sem við teljum hagfelldar horfur í fraktflutningum og leiguflugsstarfsemi á árinu 2016. Það er mikilvægt að árétta að ytri þættir svo sem sveiflur á eldsneytisverði og gjaldeyrismörkuðum geta haft töluverð áhrif á afkomu félagsins.

Starfsfólk okkar hefur á undanförnum árum unnið frábært starf við uppbyggingu félagsins og sá árangur sem náðist í rekstrinum á seinasta ári er afrakstur þeirrar vinnu. Fyrir það ber að þakka.“

 

Nánari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group
sími: 896-1455

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group
sími: 665-8801


Attachments

Icelandair Group hf 31 12 2015.pdf Fréttatilkynning_Q4_2015.pdf