N1 hf : Birting uppgjörs 4. ársfjórðungs 2015 þann 17. febrúar 2016


N1 birtir uppgjör sitt fyrir 4. ársfjórðung 2015 eftir lokun markaða miðvikudaginn 17. febrúar næstkomandi.

Opinn kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 18. febrúar 2016 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 - 14 Kópavogi 3. hæð. Eggert Kristófersson forstjóri N1 mun kynna afkomu félagsins og svara spurningum.

Fundurinn hefst kl. 08:30. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 08:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu N1: www.n1.is/fjarfestatengsl