Rekstur Landsbréfa hf. skilaði 616 milljóna kr. hagnaði á árinu 2015


Landsbréf hf. hafa birt ársreikning ársins 2015.  Helstu niðurstöður voru þessar:

  • Hagnaður af rekstri Landsbréfa nam 616 milljónum króna á árinu 2015, samanborið við 188 milljóna króna hagnað fyrir rekstrarárið 2014.
  • Hreinar rekstrartekjur námu 1.569 milljónum króna á árinu 2015 samanborið við 1.104 milljónir króna rekstrarárið 2014. 
  • Eigið fé Landsbréfa í árslok 2015 nam um 2.448 milljónum króna samanborið við 1.832 milljónir króna í lok 2014. Eiginfjárhlutfall sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki var 86,5%, en hlutfall þetta má lægst vera 8%.
  • Í lok tímabilsins stýrðu Landsbréf eignum fyrir 31 sjóð og félög og eru hlutdeildarskírteinishafar í sjóðum félagsins um 13 þúsund talsins.
  • Starfsmenn voru 17 í árslok og hafði fækkað um einn á árinu. 
  • Eignir í stýringu voru í árslok um 129 milljarðar króna samanborið við um 111 milljarða króna árið áður.
  • Ávöxtun sjóða Landsbréfa var almennt mjög góð á árinu 2015. Rekstur Landsbréfa gekk mjög vel á árinu 2015 og skilaði félagið góðum hagnaði eða 616 milljónum króna. Rekstur félagsins á árinu 2015 einkenndist af góðum vexti og stækkuðu sjóðir félagsins vegna aukinnar sölu hlutdeildar í sjóðunum og eins góðrar ávöxtunar.  Landsbréf settu á stofn nokkuð af  nýjum afurðum á árinu og þar má td. nefna fagfjárfestasjóðinn Brunn vaxtarsjóð slhf., sem fjárfestir í sprota- og nýsköpunarverkefnum. Fjármögnun sjóðsins lauk í upphafi ársins 2015 og réðist sjóðurinn í fyrstu fjárfestingar sínar á árinu.   

 

Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa:

„Rekstur félagsins gekk vel á árinu og skilaði eigendum góðri arðsemi. Á árinu varð umtalsverður vöxtur á eignum í stýringu Landsbréfa og grunnur lagður að heilbrigðum rekstri til framtíðar. Sjóðir Landsbréfa skiluðu fjárfestum almennt góðri ávöxtun á árinu 2015 og þá ekki hvað síst hlutabréfasjóðir félagsins. Landsbréf annast með rekstri sjóða sinna stýringu á fjármunum um 13 þúsund viðskiptavina. Í því felst ábyrgð sem starfsfólk félagsins leggur metnað sinn í að axla í þágu þessara viðskiptavina. Sá góði árangur sem náðist á árinu 2015 leggur grunninn að ánægju viðskiptavina og treystir þar með góðan rekstur Landsbréfa, enda fara hagsmunir viðskiptavina og félagsins saman.“

 

Nánari upplýsingar um ársreikning Landsbréfa veitir Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa, í síma 410 2511.


Attachments

Ársreikningur Landsbref 2015.pdf