Dagskrá og tillögur aðalfundar Nýherja hf. 4. mars 2016


Aðalfundur Nýherja hf. verður haldinn föstudaginn 4. mars 2016 kl. 16.00  í ráðstefnusal félagsins að Borgartúni 37

 

Dagskrá fundarins  

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
     
  2. Staðfesting ársreiknings og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað  félagsins á reikningsárinu.
     
  3. Tekin ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
     
  4. Tillögur félagsstjórnar um starfskjarastefnu.
     
  5. Tillaga um samþykkt heimildar stjórnar til þess að gefa út nýtt hlutafé vegna kaupréttaráætlunar.

Stjórn Nýherja hf. leggur til við aðalfund félagsins að stjórninni verði veitt heimild til að gefa út nýtt hlutafé, allt að kr. 60.000.000 að nafnverði til að uppfylla skyldur sem félagið kann að takast á hendur með gerð kaupréttarsamninga við starfsmenn félagsins og dótturfélaga. Kaupréttarsamningar munu byggja á kaupréttaráætlun sem gerð hefur verið á grundvelli 10. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. fyrirliggjandi drög að kaupréttaráætlun, sem eru aðgengileg á heimasíðu og skrifstofu félagsins og teljast hluti tillögu þessarar.

  1. Tillögur stjórnar að breytingum á samþykktum félagsins, og aðrar breytingartillögur, ef einhverjar verða.

Auk framangreindrar breytingartillögu á samþykktum um heimild stjórnar til hækkunar á hlutafé, leggur stjórn til við aðalfund að tölulið 8 í grein 4.13 samþykktanna verði breytt þannig að vísað sé til greinar 4.16 í stað greinar 4.20. 

  1. Kosning stjórnar félagsins sbr. grein 5.1. í samþykktum félagsins.
     
  2. Kosning endurskoðanda sbr. grein 10.1. í samþykktum félagsins.
     
  3. Tillögur frá hluthöfum sem ber að taka á dagskrá samkvæmt grein 4.16 sbr. 4. mgr. 88. gr. hlutafélagalaga.
     
  4. Tillaga um heimild félagsins til kaupa á eigin hlutum sbr. 55. gr. hlutafélagalaga.
     
  5. Önnur mál.

 

Réttur hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og kosning

Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar með nægilegum fyrirvara til að unnt sé að taka mál til meðferðar á fundinum. Þannig skulu óskir hluthafa hafa borist til stjórnar félagsins eigi síðar en 10 dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16.00 þriðjudaginn 23. febrúar 2016. Nánari upplýsingar um þátttöku og atkvæðagreiðslu er að finna á heimasíðu félagsins.

Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar. Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað.

Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt umboð eða greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins.

Aðrar upplýsingar

Dagskrá svo og öll skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur félagsins og allar tillögur, verða hluthöfum tiltæk á heimasíðu félagsins og munu jafnframt liggja frammi á skrifstofu félagsins. Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr. a. hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega, minnst fimm dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar. Tilkynnt verður um framboð til stjórnar á heimasíðu félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfundinn.

 

Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn er að finna á heimasíðu félagsins, www.nyherji.is.


Attachments

Tillögur stjórnar f. aðalfund Nýherja hf.pdf Aðalfundarauglýsing Nýherja hf.pdf