Sjóvá-Almennar tryggingar hf. munu birta ársuppgjör 2015 eftir lokun markaða fimmtudaginn 18. febrúar. Markaðsaðilum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð kl. 8:30 föstudaginn 19. febrúar. Hermann Björnsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum.
Kynning á uppgjörinu verður aðgengileg á vef Sjóvár www.sjova.is frá þeim tíma er kynningarfundurinn hefst. Einnig verður hægt að fylgjast með fundinum á vefnum á slóðinni www.sjova.is/afkomukynningar.