Afkoma Arion banka á árinu 2015 ber þess merki að til lykta voru leidd nokkur umfangsmikil úrlausnarmál sem vörðuðu mikla hagsmuni fyrir bankann. Fyrst og fremst er um að ræða sölu bankans á hlutum í fimm félögum: Reitum fasteignafélagi hf., Eik fasteignafélagi hf., Símanum hf., alþjóðlega drykkjarframleiðandanum Refresco Gerber og Bakkavor Group Ltd. Öll voru félögin skráð í kauphöll hér á landi eða erlendis, nema eignarhluturinn í Bakkavor Group sem var seldur í kjölfar söluferlis í umsjón Barclays bankans. Þannig nam hagnaður Arion banka á árinu 2015 49,7 milljörðum króna eftir skatta samanborið við 28,7 milljarða króna á árinu 2014. Arðsemi eigin fjár var 28,1% samanborið við 18,6% árið 2014.
Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 16,8 milljörðum króna samanborið við 12,7 milljarða árið 2014. Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi nam 10,4% á árinu samanborið við 10,7% árið 2014. Heildareignir námu í árslok 2015 1.011,0 milljörðum króna samanborið við 933,7 milljarða króna í árslok 2014 og eigið fé hluthafa bankans nam 192,8 milljörðum króna í árslok og hafði hækkað um 20% milli ára.
Hagnaður á fjórða ársfjórðungi nam 24,3 milljörðum króna og eykst verulega milli ára. Ástæðuna má fyrst og fremst rekja til virðishækkunarinnar á eignarhluta í Bakkavor Group Ltd.
Umtalsverðar virðisbreytingar urðu á lánabók bankans á árinu. Niðurfærslur tengjast að mestu lánum til erlendra félaga í þjónustu tengdri olíuleit og lánum sem bankinn yfirtók frá AFL – sparisjóði á árinu. Hækkanir tengjast að mestu uppgreiðslu lána, bæði einstaklinga í tengslum við leiðréttingu ríkisstjórnarinnar og fyrirtækja í tengslum við endurskipulagningu og sölu.
Eiginfjárhlutfall bankans í lok ársins 2015 var 24,2% en var 26,3% í árslok 2014. Lækkunin er einkum tilkomin vegna arðgreiðslu að fjárhæð 12,8 milljarðar króna og fyrirframgreiðslu á víkjandi lánum frá ríkinu að fjárhæð 20 milljarðar króna. Hlutfall eiginfjárþáttar A hækkaði og nam 23,4% samanborið við 21,8% í árslok 2014.
Helstu rekstrar- og kennitölur bankans eru eftirfarandi, samanborið við fyrra ár:
Rekstrarreikningur | ||||
Í milljónum króna | 2015 | 2014 | 4F 2015 | 4F 2014 |
Hreinar vaxtatekjur | 26.992 | 24.220 | 6.705 | 5.911 |
Hreinar þóknanatekjur | 14.484 | 13.309 | 3.758 | 3.190 |
Hreinar fjármunatekjur | 12.844 | 7.290 | 2.668 | 1.429 |
Hlutdeild í hagnaði hlutdeildarfélaga | 29.466 | 3.498 | 22.510 | 3.525 |
Aðrar rekstrartekjur | 2.769 | 5.673 | 537 | 1.683 |
Rekstrartekjur | 86.555 | 53.990 | 36.178 | 15.738 |
Laun og launatengd gjöld | (14.892) | (13.979) | (4.572) | (3.953) |
Annar rekstrarkostnaður | (13.304) | (13.063) | (4.288) | (4.465) |
Bankaskattur | (2.818) | (2.643) | (650) | (635) |
Hrein virðisbreyting | (3.087) | 2.135 | (2.973) | (742) |
Hagnaður fyrir skatta | 52.454 | 26.440 | 23.695 | 5.943 |
Tekjuskattur | (3.135) | (4.679) | 504 | (223) |
Afkoma af aflagðri starfsemi eftir skatta | 360 | 6.833 | 83 | 241 |
Hagnaður tímabilsins | 49.679 | 28.594 | 24.282 | 5.961 |
Helstu kennitölur | ||||
Arðsemi eigin fjár | 28,1% | 18,6% | 51,6% | 14,8% |
Vaxtamunur á vaxtaberandi eignir | 3,0% | 2,8% | 2,9% | 2,8% |
Kostnaðarhlutfall | 32,6% | 50,1% | 24,5% | 53,5% |
Tier 1 hlutfall | 23,4% | 21,8% | 23,4% | 21,8% |
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:
„Afkoma ársins er afar góð en markast mjög af óreglulegum liðum. Árið 2015 markar ákveðin kaflaskil í starfsemi Arion banka því á árinu voru nokkur umfangsmikil úrlausnarverkefni leidd til lykta. Verkefni sem unnið hefur verið að innan bankans um nokkurra ára skeið. Annars vegar er um að ræða sölu Arion banka á hlutum í þremur íslenskum félögum í aðdraga skráningar þeirra í kauphöll og hins vegar sölu á eignarhlutum í tveimur erlendum félögum. Niðurstaða þessara mála hefur afar jákvæð áhrif á uppgjör ársins. Í raun eru lok þessara mála mikill áfangi fyrir bankann því nú er öllum stærstu úrlausnarmálunum lokið.
Skráningar Reita fasteignafélags, Eikar fasteignafélags og Símans í kauphöll, sem voru í umsjón Arion banka og fóru fram að loknu almennu hlutafjárútboði, voru einu nýskráningarnar í kauphöll hér á landi á síðasta ári. Það hefur verið stefna Arion banka að stuðla að skráningu félaga í Kauphöll og gefa þannig almenningi kost á að taka þátt í uppbyggingu atvinnulífs og virks hlutabréfamarkaðar.
Grunnstarfsemi bankans hélt áfram að eflast á árinu og styrkti bankinn sína stöðu á öllum helstu mörkuðum. Góður vöxtur var í eignastýringu bankans sem og lánum til fyrirtækja. Arion banki vann á árinu samkeppni um fjármálaþjónustu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og mun hefja þar starfsemi með vorinu. Það er virkilega spennandi verkefni ekki síst í ljósi mikillar fjölgunar ferðamanna hér á landi. Þetta var um margt óvenju viðburðarríkt ár og fór svo að fagtímaritið The Banker, sem er gefið út af The Financial Times, valdi Arion banka sem banka ársins á Íslandi.
Við sáum á árinu talsverða þróun og árangur hjá nýsköpunarfyrirtækjum sem hafa farið í gegnum Startup Reykjavík og Startup Energy Reykjavík. Aðgengi að áhættufjármagni hefur batnað til muna og í heildina hafa þau 54 fyrirtæki sem bankinn hefur fjárfest í aflað rúmlega 1.700 milljóna króna. Tveir þriðju þeirrar upphæðar eru í formi hlutafjár og einn þriðji í formi styrkja. Þetta er að okkar mati til marks um afar ánægjulega og mikilvæga þróun í umhverfi nýsköpunarfyrirtækja hér á landi.
Verkefni okkar á undanförnum árum hefur verið að byggja upp góðan banka sem veitir sínum viðskiptavinum góða fjármálaþjónustu með ábyrgum hætti. Banka sem er fjárhagslega sterkur, í stakk búinn að takast á við afnám fjármagnshafta og eftirsóknarverður fjárfestingarkostur. Okkur hefur miðað vel í þessum efnum. Nú í upphafi árs var tilkynnt um samning Arion banka og Kaupþings sem tekur til endurfjármögnunar bankans og er liður í því að uppfylla stöðugleikaskilyrði ríkisstjórnarinnar vegna afnáms fjármagnshafta. Einnig förum við ekki varhluta af áhuga á söluferli bankans sem stendur fyrir dyrum. Það eru áhugaverðir tímar framundan.“
Helstu atburðir ársins
- Árið 2015 einkenndist af úrlausnum og lokum ýmissa mikilvægra mála í rekstri bankans.
- Í mars var drykkjarvörufyrirtækið Refresco Gerber skráð á Euronext markaðinn í Amsterdam. Arion banka samstæðan átti í beinu og óbeinu eignarhaldi ríflega 9% eignarhlut í félaginu og var um helmingur af þeirri eign seldur við skráninguna. Hagnaður af sölunni og virðisbreyting eftirstandandi eignarhlutar í tengslum við skráninguna nam 6.306 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi.
- Í mars varð Arion banki fyrsti íslenski bankinn frá árinu 2008 til að gefa út skuldabréf í evrum til breiðs hóps fjárfesta á alþjóðlegum markaði. Útgáfan nam 300 milljónum evra til þriggja ára, eða sem samsvarar 47 milljörðum króna og voru kaupendur um 100 alþjóðlegir fjárfestar. Eftirspurn var umtalsverð umfram framboð.
- Í byrjun apríl voru Reitir fasteignafélag hf. skráðir á Nasdaq Ísland. Arion banki hafði umsjón með skráningunni og seldi jafnframt umtalsverðan hlut af sínum eignarhluta í félaginu í almennu útboði. Samtals voru rekstraráhrif af sölu eignarhlutarins og virðisbreyting eftirstandandi hlutar 4.224 milljónir króna á fyrri helmingi ársins.
- Fasteignafélagið Eik hf. var skráð á Nasdaq Ísland í lok apríl. Arion banki hafði umsjón með skráningunni og seldi jafnframt um 14% eignarhlut sinn í félaginu í almennu útboði á sama tíma. Söluhagnaður nam ríflega 600 milljónum króna.
- Í apríl greiddi Arion banki 12,8 milljarða króna í arð til hluthafa sinna.
- Arion banki nýtti nýja fjármögnun í evrum að hluta til að greiða niður víkjandi lán frá ríkissjóði en samtals voru greiddir um 20 milljarðar króna fyrirfram inn á lánin. Kjör bréfanna hækkuðu í ársbyrjun 2015 sem var einn helsti hvati til niðurgreiðslu.
- Á árinu eignaðist Arion banki allt stofnfé í AFL - sparisjóði og á haustmánuðum sameinaðist sjóðurinn Arion banka. Opnað var nýtt útibú Arion banka á Siglufirði og starfsemin á svæðinu efld.
- Í október var Síminn hf. skráður á Nasdaq Ísland. Í aðdraganda skráningar seldi Arion banki um 10% eignarhlut í félaginu og um 20% til viðbótar í almennu útboði í tengslum við skráninguna. Arion banki hafði umsjón með skráningunni. Rekstaráhrif af sölunni og virðisbreytingu eftirstandandi hlutar var 4.185 milljónir króna á árinu.
- Á árinu var unnið markvisst að sölu á 46% eignarhlut dótturfélagsins BG12 slhf. í Bakkavor Group Ltd. í samvinnu við aðra hluthafa félagsins. Í byrjun árs 2016 var eignarhluturinn seldur og var virði eignarhlutarins í árslok 2015 færður til samræmis við söluverðið. Virðisbreyting eignarhlutar BG12 nam samtals 20.845 milljónum króna á árinu, en Arion banki á 62% eignarhlut í BG12 slhf.
- Á árinu hélt Arion banki áfram að gefa út sértryggð skuldabréf í samræmi við lög nr. 11/2008 um sértryggð skuldabréf. Samtals gaf bankinn út sértryggð bréf fyrir 23,6 milljarða króna á árinu. Viðskiptavakt var aukin með samningum við þrjá viðskiptavaka til að auka seljanleika bréfanna og virkni á markaði.
- Aukin áhersla var lögð á lausafjárstýringu hjá bankanum sem skilaði sér m.a. í hærri vaxtamun en var á árinu 2014.
- Gæði lánabókar bankans héldu áfram að batna á árinu 2015. Hlutfall vandræðalána, sem skilgreind eru sem lán í vanskilum lengur en 90 daga auk lána sem eru með sértæka niðurfærslu, lækkaði úr 4,4% í árslok 2014 í 2,5% í árslok 2015. Umtalsverðar virðisbreytingar urðu á útlánum á árinu 2015 samanborið við fyrra ár. Virðishækkanir voru í tengslum við uppgreiðslu lána, bæði til einstaklinga og fyrirtækja. Niðurfærslur voru hins vegar bæði vegna yfirtöku á lánasafni AFL – sparisjóðs og vegna útlána til erlendra þjónustufyrirtækja sem tengd eru olíuleit. Heildarumfang lána til þessara þjónustufyrirtækja nemur innan við 1% af heildarlánum bankans og hefur verið færð viðeigandi varúðarniðurfærsla vegna þeirra.
- Á miðju ári kynnti ríkisstjórnin áætlun um afnám fjármagnshafta, sem hafa verið í gildi frá árinu 2008. Í framhaldi voru kynntar áætlanir slitabúanna um stöðugleikaframlög þar sem Arion banki gegndi lykilhlutverki í framlagi slitabús Kaupþings ehf. Arion banki undirbjó þessar væntu breytingar vel á árinu 2015 og var gengið frá samningum við Kaupþing í ársbyrjun 2016 sem munu tryggja langtímahagsmuni bankans varðandi fjármögnun í erlendum gjaldeyri til næstu ára.
- Á árinu var gengið frá samningum um kaup á meirihluta í tryggingafélaginu Verði hf. Kaupin eru háð samþykki eftirlitsaðila en búist er við að gengið verði frá þeim á næstu mánuðum.
Fundur með markaðsaðilum
Arion banki mun halda símafund á ensku fyrir markaðsaðila, fimmtudaginn 25. febrúar, klukkan 13:00. Á fundinum mun Stefán Pétursson, fjármálastjóri Arion banka, fara yfir helstu atriði í uppgjöri bankans. Áhugasamir geta sent tölvupóst á ir@arionbanki.is og fá í kjölfarið sendar innhringiupplýsingar.
Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, samskiptasviði Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.