Í 13. og 14. viku 2016 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 3.203.099 eigin hluti fyrir 68,4 m.kr. eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu TM eftir viðskipti |
1.4.2016 | 14:23 | 40.000 | 21,45 | 858.000 | 37.476.690 |
4.4.2016 | 13:26 | 116.735 | 21,55 | 2.515.639 | 37.593.425 |
4.4.2016 | 15:13 | 320.000 | 21,55 | 6.896.000 | 37.913.425 |
5.4.2016 | 11:33 | 908.788 | 21,55 | 19.584.381 | 38.822.213 |
6.4.2016 | 12:32 | 908.788 | 21,15 | 19.220.866 | 39.731.001 |
7.4.2016 | 09:45 | 48.361 | 21,25 | 1.027.671 | 39.779.362 |
7.4.2016 | 09:49 | 22.500 | 21,25 | 478.125 | 39.801.862 |
7.4.2016 | 09:57 | 837.927 | 21,25 | 17.805.949 | 40.639.789 |
Samtals | 3.203.099 | 68.386.632 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 1. apríl 2016, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.
TM hefur nú keypt samtals 3.203.099 hluti í félaginu sem samsvarar 13,3% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 68,4 milljónum króna. TM á nú samtals 5,5% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 24.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2017 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Henni lýkur þó í síðasta lagi 31. mars 2017. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Viðarsson, forstjóri
s: 515-2609
sigurdur@tm.is