Lækkun hlutafjár í Sjóvá-Almennum tryggingum hf.


Skráð hefur verið í Fyrirtækjaskrá hlutafjárlækkun í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. að nafnverði kr. 30.084.227, en á aðalfundi félagsins þann 11. mars 2016 var samþykkt tillaga stjórnar Sjóvár um að lækka hlutafé félagsins um sem nam eigin hlutum félagsins þann 31.12.2015 og þeim þannig eytt. Tilkynning um helstu niðurstöður aðalfundar var birt opinberlega þann 11. mars sl. Lagaskilyrðum fyrir lækkun hlutafjárins hefur nú verið fullnægt og lækkunin því verið framkvæmd.

Skráð hlutafé Sjóvá-Almennra trygginga hf. eftir lækkunina er að nafnverði kr. 1.562.436.767, en var fyrir lækkunina kr. 1.592.520.994 að nafnverði. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda. Eftir hlutafjárlækkunina á félagið 9.915.773 hluti í sjálfu sér eða sem nemur 0,63% af heildarhlutafé eftir lækkun. Niðurfærslan hefur ekki áhrif á hlutafé í eigu annarra hluthafa en félagsins sjálfs.