Á aðalfundi Landsvirkjunar, sem haldinn var í dag, var samþykkt tillaga fjármála- og efnahagsráðherra um kjör aðalmanna og varamanna í stjórn Landsvirkjunar.
Á aðalfundinum var jafnframt samþykkt tillaga stjórnar um arðgreiðslu til eigenda að fjárhæð 1,5 milljarðar króna fyrir árið 2015.
Aðalmenn í stjórn Landsvirkjunar voru endurkjörnir: Jónas Þór Guðmundsson, hæstaréttarlögmaður, Helgi Jóhannesson, hæstaréttarlögmaður, Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, Þórunn Sveinbjarnardóttir, framkvæmdastýra Samfylkingarinnar og Álfheiður Ingadóttir, líffræðingur.
Varamenn í stjórn Landsvirkjunar voru endurkjörnir: Páley Borgþórsdóttir, Teitur Björn Einarsson, Ásta Björg Pálmadóttir, Skúli Helgason og Steinþór Heiðarsson.
Sjá nánar: www.landsvirkjun.is/fyrirtaekid/stjorn
Aðalfundurinn staðfesti skýrslu stjórnar og samstæðureikning fyrir liðið reikningsár.
Sjá nánar: www.landsvirkjun.is/Media/arsreikningur-lv-2015-samstaeda.pdf
Jónas Þór Guðmundsson endurkjörinn stjórnarformaður
Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund var Jónas Þór Guðmundsson endurkjörinn formaður stjórnar og Jón Björn Hákonarson varaformaður.