Útboð á nýjum skuldabréfum OR 2. maí


Reykjavík, 2016-04-25 17:50 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Mánudaginn 2. maí 2016 verða boðin til sölu ný skuldabréf Orkuveitu Reykjavíkur, fyrir allt að 4,5 milljarða króna, í tveimur nýjum verðtryggðum flokkum með jöfnum greiðslum til 8 og 30 ára. Fjárfestingarbankasvið Arion banka hefur umsjón með útboðinu og kynnir það fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður lokað og með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður í hvorum flokki, en OR áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna  öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega næsta virka dag eftir útboð.

         Nánari upplýsingar veita:
         Birgir Guðfinnsson, markaðsviðskiptum fjárfestingarbankasviðs Arion banka hf., í síma 444-7337 eða netfanginu verdbrefamidlun@arionbanki.is
         Ingvar Stefánsson, fjármálastjóri OR, í síma 516-6100 eða netfanginu ingvar.stefansson@or.is