- Hagnaður var 423 m.kr.
- Afkoma af vátryggingastarfsemi var neikvæð um 48 m.kr.
- Afkoma af fjárfestingarstarfsemi nam 444 m.kr.
Hermann Björnsson, forstjóri:
„Afkoma Sjóvár á fyrsta ársfjórðungi var viðunandi. Eins og undanfarna fjórðunga helgast það af góðri arðsemi fjárfestingareigna. Skaðatryggingarekstur er hins vegar þungur þar sem iðgjöld og fjárfestingartekjur af vátryggingaskuld duga ekki til að greiða fyrir tjón og rekstrarkostnað. Í sögulegu tilliti er slíkt ekki óalgengt þegar vel árar í efnahagslífinu þar sem aukin tjón fylgja auknum vexti og hraða samfélagsins. Samsett hlutfall var 106,9% á fjórðungnum en skv. lengri tíma markmiðum er stefnt á 95%. Í birtum horfum fyrir afkomu ársins 2016 er gert ráð fyrir að samsett hlutfall verði 98-100% og að hagnaður verði á bilinu 2 til 2,4 milljarðar króna. Niðurstaða fyrsta ársfjórðungs gefur ekki tilefni til að breyta þeim viðmiðum nú“ segir Hermann.
Fjárfestingar
Ávöxtun eignasafns félagsins nam 2,1% á ársfjórðungnum. Hlutabréf skiluðu mestri ávöxtun eða 3,5%. Helsta breyting á fjárfestingarsafni félagsins á fjórðungnum var að félagið jók laust fé en minnkaði eign sína í ríkisskuldabréfum og hlutabréfum.
Helstu niðurstöður og lykiltölur | 1F 2016 | 1F 2015 | % |
Iðgjöld tímabilsins | 3.584 | 3.459 | 3,6% |
Eigin iðgjöld | 3.403 | 3.291 | 3,4% |
Heildar fjárfestingartekjur | 709 | 1.040 | - 31,8% |
Þar af fjárfestingartekjur af vátryggingaskuld | 199 | 205 | -2,7% |
Heildartekjur | 4.123 | 4.341 | - 5,0% |
Tjón tímabilsins | -2.692 | -2.615 | 2,9% |
Eigin tjón | -2.735 | -2.620 | 4,4% |
Rekstrarkostnaður | -992 | -897 | 10,6% |
Afskrift óefnislegra eigna | 0 | -115 | |
Heildargjöld | -3.727 | -3.632 | 2,6% |
Afkoma fyrir skatta | 396 | 708 | |
Afkoma eftir skatta | 423 | 624 | |
Tjónahlutfall | 75,1% | 75,6% | |
Endurtryggingahlutfall | 6,0% | 4,7% | |
Kostnaðarhlutfall | 25,8% | 24,0% | |
Samsett hlutfall | 106,9% | 104,3% | |
Ávöxtun eigin fjár | 10,5% | 15,5% | |
Hagnaður á hlut | 0,27 | 0,39 |
Eignir | 2016 | 2015 |
Fjárfestingar | 33.400 | 33.785 |
Viðskiptakröfur | 5.940 | 4.078 |
Handbært fé | 1.554 | 1.385 |
Heildareignir | 43.185 | 41.435 |
Eigið fé samtals | 15.940 | 16.291 |
Eiginfjárhlutfall | 36,9% | 39,3% |
Gjaldþolshlutfall SII | 1,83 | 1,86 |
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Kynningarfundur 29. apríl kl. 08:30
Sjóvá býður til opins kynningarfundar um afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi 2016 föstudaginn 29. apríl kl. 08:30 í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð. Hermann Björnsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá fundinum á vefslóðinni www.sjova.is/afkomukynningar
Nánari upplýsingar
Allar nánari upplýsingar veitir Þórður Pálsson í síma 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is