VIÐSKIPTAYFIRLIT APRÍL 2016 – NASDAQ ICELAND


Reykjavík, 2. maí, 2016 – Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.

Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir apríl 2016 eru eftirfarandi:   

Hlutabréf:

·         Heildarviðskipti með hlutabréf í aprílmánuði námu 44.408 milljónum eða 2.220 milljónum á dag. Það er 20% hækkun frá fyrri mánuði, en í mars námu viðskipti með hlutabréf 1.845 milljónum á dag.  Þetta er 62% hækkun á milli ára (viðskipti í apríl 2015 námu 1.371 milljón á dag).

·         Mest voru viðskipti með bréf Icelandair Group (ICEAIR), 12.343 milljónir, Marel (MARL), 7.161 milljón, Reita fasteignafélags (REITIR), 3.811 milljón, N1 (N1), 3.122 milljónir og Eik fasteignafélags (EIK), 3.042 milljónir.

·         Úrvalsvísitalan (OMXI8) lækkaði um 0,7% á milli mánaða og stendur nú í 1.872 stigum.

·         Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Landsbankinn með mestu hlutdeildina, 26,2% (25,3% á árinu), Arion banki með 23,2% (23,8% á árinu), og Kvika banki með 20,2% (19,1% á árinu).

·         Í lok apríl voru hlutabréf 19 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi. Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 1.043 milljörðum króna (samanborið við 1.048 milljarða í mars).

Skuldabréf:

·         Heildarviðskipti með skuldabréf námu 107 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 5,4 milljarða veltu á dag. Þetta er 14% lækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í mars námu 6,2 milljörðum á dag), og 9% hækkun frá fyrra ári (viðskipti í apríl 2015 námu 4,9 milljörðum á dag).

·         Alls námu viðskipti með ríkisbréf 90,7 milljörðum, viðskipti með bankabréf námu 7,8 milljörðum og viðskipti með íbúðabréf námu 5,2 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 20 0205, 17,5 milljarðar, RIKB 22 1026, 16,3 milljarðar, RIKB 25 0612, 15,9 milljarðar, RIKB 19 0226, 12,0 milljarðar og RIKB 31 0124, 10,6 milljarðar.

·         Á skuldabréfamarkaði var Kvika banki með mestu hlutdeildina 22,7% (24,6% á árinu), Arion banki  með 22,1% (18,3% á árinu) og Landsbankinn með 18,2% (18,7% á árinu).

·         Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 0,2% í apríl og stendur í 1.185 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 0,2% og sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði einnig um 0,2%.                

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

#

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 70 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,600 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 9.6 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm. 

         Fjölmiðlar:
         Krstín Jóhanns
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com
         s. 868 9836


Attachments

2016_0502_Viðskiptayfirlit fyrir apríl 2016.docx.pdf