Vátryggingafélag Íslands hf. - árshlutauppgjör


Árshlutareikningur fyrsta ársfjórðungs 2016

Samstæðuárshlutareikningur félagsins fyrir fyrsta ársfjórðung 2016 var staðfestur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 3. maí 2016.  Reikningurinn hefur ekki verið kannaður eða endurskoðaður af endurskoðendum félagsins.

Helstu niðurstöður

  • Hagnaður af rekstri nam 145 m.kr. samanborið við 733 m.kr. hagnað fyrir sama tímabil 2015.
  • Samsett hlutfall var 104,5% en var 105,2% á sama tíma í fyrra.
  • Tekjur af fjárfestingastarfsemi námu  435 m.kr. samanborið við 1.113 m.kr. 2015

Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri

„Afkoma félagsins á fyrsta ársfjórðungi var undir væntingum þrátt fyrir ágætan vöxt í innlendum iðgjöldum, en bókfærð iðgjöld innanlands hækkuðu  um 11% frá sama tímabili í fyrra.   Afkoman litast af slakri afkomu af skaðatryggingastarfsemi en tap er af bæði frjálsum og lögboðnum ökutækjatryggingum á tímabilinu.  Fjárfestingastarfsemin innanlands gekk vel og var ávöxtun þeirra eigna 2,2% á fjórðungnum.   Nokkuð gengis- og gjaldmiðlatap varð hins vegar af erlendum eignum félagsins eða um 300 milljónir króna.  Félagið hefur dregið úr erlendri stöðu sinni á fjórðunginum.“

Arðgreiðsla

Aðalfundur félagsins sem haldinn var þann 16. mars s.l. samþykkti arðgreiðslu að fjárhæð 2.067 m.kr. sem greidd var til hluthafa þann 15. apríl s.l. Gjaldþolshlutfall í lok mars var 1,86.

Víkjandi skuldabréf

Í lok febrúar gaf félagið út víkjandi skuldabréf að nafnverði 2.500 m.kr. en útgáfa skuldabréfanna er liður í endurskipulagningu á fjármagnsskipan félagsins og tilheyrir hún  eiginfjárþætti 2. 

Horfur

Gert er ráð fyrir að ágætur vöxtur verði í iðgjöldum á árinu og reiknað er með að samsett hlutfall á árinu 2016 verði lægra en það var á árinu 2015.

Kynningarfundur

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn hjá VÍS í Ármúla 3, 5. hæð, þann 4. maí n.k. kl. 8:30. Þar kynnir Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri VÍS afkomu félagsins og svarar spurningum. Kynningarefni fundarins verður aðgengilegt að honum loknum á heimasíðu VÍS: www.vis.is

 

Fjárhagsdagatal

Viðburður                             Dagsetning:

Fyrsti ársfjórðungur             3. maí 2016

Annar ársfjórðungur        25. ágúst 2016

Þriðji ársfjórðungur      26. október 2016

Ársuppgjör 2016           23. febrúar 2017

Aðalfundur 2017              16. mars 2017

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri í síma 560-5000 og í netfangi fjarfestatengsl@vis.is.


Attachments

VÍS - Samstæðuárshlutareikningur 31.03.2016.pdf Afkomutilkynning VÍS 2016 3M.pdf