Í 19. viku 2016 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 3.226.364 eigin hluti fyrir 68,7 m.kr. eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu TM eftir viðskipti |
10.5.2016 | 10:51 | 22.500 | 21,35 | 480.375 | 18.132.174 |
10.5.2016 | 15:14 | 886.288 | 21,40 | 18.966.563 | 19.018.462 |
11.5.2016 | 14:42 | 908.788 | 21,35 | 19.402.624 | 19.927.250 |
12.5.2016 | 13:32 | 500.000 | 21,15 | 10.575.000 | 20.427.250 |
13.5.2016 | 15:01 | 908.788 | 21,20 | 19.266.306 | 21.336.038 |
Samtals | 3.226.364 | 68.690.868 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 1. apríl 2016, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.
TM hefur nú keypt samtals 12.933.527 hluti í félaginu sem samsvarar 53,9% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 276,8 milljónum króna. TM á nú samtals 3,0% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 24.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2017 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Henni lýkur þó í síðasta lagi 31. mars 2017. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Viðarsson, forstjóri
s: 515-2609
sigurdur@tm.is