Í 20. viku 2016 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 3.635.152 eigin hluti fyrir 75,2 m.kr. eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu TM eftir viðskipti |
17.5.2016 | 11:27 | 908.788 | 21,00 | 19.084.548 | 22.244.826 |
18.5.2016 | 09:57 | 908.788 | 20,65 | 18.766.472 | 23.153.614 |
19.5.2016 | 14:48 | 908.788 | 20,65 | 18.766.472 | 24.062.402 |
20.5.2016 | 11:23 | 908.788 | 20,50 | 18.630.154 | 24.971.190 |
Samtals | 3.635.152 | 75.247.646 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 1. apríl 2016, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.
TM hefur nú keypt samtals 16.568.679 hluti í félaginu sem samsvarar 69,0% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 352,0 milljónum króna. TM á nú samtals 3,5% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 24.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2017 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Henni lýkur þó í síðasta lagi 31. mars 2017. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Viðarsson, forstjóri
s: 515-2609
sigurdur@tm.is