Í 21. viku 2016 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 2.201.910 eigin hluti fyrir 44,7 m.kr. eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu TM eftir viðskipti |
23.5.2016 | 09:33 | 908.788 | 20,10 | 18.266.639 | 25.879.978 |
24.5.2016 | 14:49 | 908.788 | 20,45 | 18.584.715 | 26.788.766 |
25.5.2016 | 13:03 | 98.356 | 20,35 | 2.001.545 | 26.887.122 |
25.5.2016 | 13:07 | 9.395 | 20,35 | 191.188 | 26.896.517 |
26.5.2016 | 10:42 | 234.019 | 20,35 | 4.762.287 | 27.130.536 |
26.5.2016 | 13:56 | 20.064 | 20,35 | 408.302 | 27.150.600 |
26.5.2016 | 14:21 | 22.500 | 20,35 | 457.875 | 27.173.100 |
Samtals | 2.201.910 | 44.672.550 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 1. apríl 2016, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.
TM hefur nú keypt samtals 18.770.589 hluti í félaginu sem samsvarar 78,2% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 396,7 milljónum króna. TM á nú samtals 3,8% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 24.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2017 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Henni lýkur þó í síðasta lagi 31. mars 2017. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Viðarsson, forstjóri
s: 515-2609
sigurdur@tm.is