Í 22. viku 2016 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 2.067.576 eigin hluti fyrir 42,7 m.kr. eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu TM eftir viðskipti |
31.5.2016 | 15:29 | 250.000 | 20,65 | 5.162.500 | 27.423.100 |
2.6.2016 | 09:30 | 47.847 | 20,75 | 992.825 | 27.470.947 |
2.6.2016 | 15:16 | 860.941 | 20,75 | 17.864.526 | 28.331.888 |
3.6.2016 | 09:30 | 908.788 | 20,50 | 18.630.154 | 29.240.676 |
Samtals | 2.067.576 | 42.650.005 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 1. apríl 2016, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.
TM hefur nú keypt samtals 20.838.165 hluti í félaginu sem samsvarar 86,8% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 439,4 milljónum króna. TM á nú samtals 4,1% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 24.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2017 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Henni lýkur þó í síðasta lagi 31. mars 2017. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Viðarsson, forstjóri
s: 515-2609
sigurdur@tm.is